Leitað að flugvél í dag

Líf, þyrla Landhelgisgæslunnar.
Líf, þyrla Landhelgisgæslunnar.

Líf, þyrla Landhelgisgæslunnar,  fór í dag í leitarflug á svæðinu þar sem leitað hefur verið að Piper Cherokee flugvél frá því á fimmtudag.  Enn hefur ekkert fundist sem bent gæti til afdrifa flugmannsins eða flugvélarinnar.

Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni var veður og sjólag gott og aðstæður til leitar góðar, en leitaraðstæður hafa verið mjög slæmar allt frá því slysið varð.

Skip sem leið hafa átt um svæðið hafa einnig litast gaumgæfilega um.

Skipulagðri leit að bandarískum flugmanni Piper Cherokee flugvélar hefur verið hætt en leit sem hafði staðið yfir frá því á fimmtudaginn hafði engan árangur borið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert