Ingibjörg Sólrún ræðir við Ban Ki-moon

Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna.
Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. AP

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkiráðherra, mun í dag eiga fund með framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-moon, í höfuðstöðvum samtakanna í New York. Rúm fjögur ár eru liðin frá því að utanríkisráðherra Íslands átti síðast fund með framkvæmdastjóra SÞ.

Að sögn utanríkisráðuneytisins munu þau Ingibjörg Sólrún og Ban Ki-Moon ræða jafnréttismál og mikilvægi kynjajafnréttis sem forsendu árangurs í brýnustu verkefnum alþjóðasamfélagsins er varða frið, öryggi og loftslagsbreytingar.

Ingibjörg Sólrún situr þessa dagana árlegan fund Kvennanefndar SÞ en í gær kynnti Ban Ki-moon stórtækustu aðgerðaráætlun gegn kynbundnu ofbeldi sem sett hefur verið fram hjá Sameinuðu þjóðunum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert