Fagna niðurstöðu dóms í DC++ máli

Héraðsdómur Reykjavíkur
Héraðsdómur Reykjavíkur mbl.is/Þorkell

Rétthafar tónlistar og myndefnis lýsa yfir ánægju sinni með niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í dag þar sem fallist var á kröfu ákæruvaldsins og allir einstaklingar sem ákærðir voru, í hinu svo kallaða DC++ máli, sakfelldir fyrir margvísleg brot á höfundarétti.

Refsikrafa var staðfest og eru framgreind brot grundvöllur bótaskyldu vegna ólögmætra nota á höfundaréttavörðu efni. Allir ákærðu voru dæmdir til greiðslu sakarkostnaðar.

Ákærðu voru, eins og áður segir, sakfelldir fyrir að birta og gera eintök af forritum, kvikmyndum og tónlist á netinu þannig að aðrir gætu nálgast það efni án leyfis rétthafa. Ennfremur var einn ákærða dæmdur fyrir að setja upp og hýsa miðlægan nettengipunkt og hafa með því liðsinnt í verki og hvatt til þess að aðrir ákærðu birtu á netinu í heimildarleysi ólögmæt eintök varin höfundarétti. Þar með er hlutdeildarbrot hvað varðar höfundarétt staðfest, samkvæmt tilkynningu frá rétthöfum tónlistar og myndefnis.

Einnig var staðfest krafa rétthafa um upptöku tölvubúnaðar sem hinir ákærðu notuðu við skráarskiptin sín á milli.

„Dómur þessi verður ennfremur vonandi til þess að almenningur átti sig á því að það er ólögmæt að skiptast á kvikmyndum, tónlist og forritum á netinu án heimildar rétthafa. Málaferli af þessum toga eru ávallt neyðarbrauð þar sem þau eru bæði tímafrek og dýr fyrir alla sem í hlut eiga þ.e. rétthafa, lögregluyfirvöld, dómskerfið og brotaþola," samkvæmt tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert