Utanríkisráðherra sendir kveðju á baráttufund

Utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sendi kveðju  til baráttufundar Íslands-Palestínu á Lækjartorgi sem  nú stendur yfir.

„Ég sendi fundarmönnum mínar bestu baráttukveðjur.  Framlag ykkar er mikilvægt til að vekja athygli á þeim grimmdarverkum sem nú eiga sér stað á Gaza.  Framferði Ísraelsmanna gagnvart óbreyttum borgurum er óafsakanlegt og skýrt brot á alþjóðalögum auk þess sem friðarferlinu er stefnt í voða.  

Íslensk stjórnvöld fordæma þetta framferði og munu hér eftir sem hingað til koma þeirri skoðun skýrt á framfæri á alþjóðavettvangi. Mikilvægt er að allir málsaðilar leggist á eitt við að leiða friðarferlið til farsælla lykta fyrir lok þessa árs þannig að til geti orðið tvö lífvænleg sjálfstæð ríki Palestínu og Ísraels."

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert