Sextán ára ökumaður

Sextán ára piltur var stöðvaður við akstur bíls í miðbæ Reykjanesbæjar í nótt. Lögreglan hafði  samband við foreldra drengsins vegna málsins. 

Nokkur ölvun var í miðbæ Reykjanesbæjar og þurfti einn maður að gista fangageymslu sökum ölvunar og óspekta.

Einn ökumaður var stöðvaður í gærkvöldi grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.  Einn ökumaður var stöðvaður á Grindavíkurvegi en hann hafði mælst á 132 km/klst þar sem leyfður hámarkshraði er 90 km/klst. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert