Al Gore flytur fyrirlestur hér

Al Gore.
Al Gore. Reuters

Al Gore, handhafi friðarverðlauna Nóbels og fyrrum varaforseti Bandaríkjanna, hefur þegið boð Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, um að koma í heimsókn til Íslands dagana 7.-8. apríl næstkomandi.

Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu forseta Íslands mun Gore m.a. sitja  kynningarfundi með íslenskum vísindamönnum og sérfræðingum, einkum á sviði orkunýtingar og jöklarannsókna. Þá mun Gore flytja fyrirlestur á fundi sem opinn verður almenningi og fjalla þar um loftslagsbreytingar, baráttuna gegn þeim og svara fyrirspurnum. Fundurinn er haldinn í samstarfi við Glitni.

Nánar verður tilkynnt um dagskrá heimsóknarinnar eftir páska.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert