Umferðaróhapp í Stöðvarfirði

Rann útaf í hálku.
Rann útaf í hálku. mbl.is/Albert Kemp

Dráttarbíll með tengivagni sem á voru stór jarðýta og mokstursvél, lenti út af í Óseyrarbrekku í sunnanverðum Stöðvarfirði í gærkvöldi. Mikil hálka var á veginum þegar óhappið varð. Bílstjórinn, Kristján Leósson, var einn í bílnum og sakaði hann ekki.

Bílstjórinn sem vinnur fyrir Suðurverk vill koma því á framfæri að vegagerðin mætti hugsa betur um vegina. Allmikil brekka er þar sem bíllinn fór út af og hefði getað farið verr.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert