Nýr Herjólfur mun betri kostur en Bakkafjöruhöfn

Vestmannaferjan Herjólfur.
Vestmannaferjan Herjólfur.

Magnús Kristinsson, útgerðarmaður í Vestmannaeyjum, segir það mun betri kost að smíða nýjan, hraðskreiðari Herjólf en að verja 6–8 milljörðum í gerð nýrrar hafnar í Bakkafjöru. Um 35% íbúa í Vestmannaeyjum hafa skrifað undir mótmæli við Bakkafjöruhöfn, en undirskriftasöfnuninni lýkur í kvöld.

Magnús sagðist hafa miklar efasemdir um höfn á Bakkafjöru. Hann sagðist taka með mikilli varúð fullyrðingum fræðimanna um að ekki verði miklar frátafir í nýrri höfn vegna veðurs. Þessar rannsóknir byggi allar á líkindum. Hann benti á að aðeins eitt dufl væri fyrir utan Bakkafjöru sem aflað hefði upplýsinga um sjólag.

„Sjómenn sem ég hef talað við segja að það hafi aldrei verið hægt að leggja trossur á þessu svæði. Straumurinn sé það mikill að þær hafi alltaf borið vestur með landinu. Líkurnar á að þarna sé hægt að búa til höfn eru mun minni en þeir segja hjá Siglingastofnun. Ég vil líka benda á að það vantar ekki nýjar hafnir á Íslandi,“ sagði Magnús.

Magnús sagði að í skýrslu sem Háskólinn á Bifröst hefði gert hefði verið bent á að nauðsynlegt væri að rannsaka betur íbúaþróun í Vestmannaeyjum og hvaða áhrif höfn í Bakkafjöru gæti haft á hana. Þetta hefði ekki verið gert.

Magnús sagði að tæknin væri þannig í ferjusmíði á Íslandi að það ætti að vera hægt að smíða ferju af svipaðri stærð og núverandi Herjólfur, en mun hraðskreiðari, öflugri og öruggari. Hann sagðist vona að menn fallist á að fara þá leið að smíða nýja ferju sem sigli á skemmri tíma milli lands og Eyja á sumrin og lengri tíma á veturna. Síðan ættu menn að sameinast um að berjast fyrir stórskipahöfn í Vestmannaeyjum, en hún myndi kosta þriðjung af stofnkostnaði Bakkafjöruhafnar.

Magnús sagði að tillaga sín væri að óskað yrði eftir tilboðum frá Samskip og Eimskip um nýja ferju og að sá sem fengi verkið fengi samning til 7–8 ára.

Hægt er að skrifa undir mótmæli við Bakkafjöruhöfn á www.strondumekki.is.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert