Ræningja enn leitað

Lögreglan leitar enn ræningja sem sem framdi vopnað rán í söluturni við Grettisgötu í gærkvöldi. Hann var vopnaður hnífi og er sagður hafa verið yfirvegaður. Ræninginn hafði á brott með sér umtalsverða fjármuni og vörur úr versluninni. Kona á sextugsaldri var við afgreiðslu þegar ránið var framið.

Nánar er fjallað um ránið í sjónvarpsfréttum mbl, en eigandi söluturnsins segir að maðurinn hafi verið með húfu og hettu yfir höfði og einnig hafi hann hulið andlit sitt með tóbaksklút. 

Aðrar helstu fréttir í sjónvarpi mbl:

Íslandspóstur: segja vinnureglur skýrar

Spákaupmenn taldir sitja á 800 milljörðum króna

Handtökur í Simbabve

Launin hæst í fjármálgeiranum

Mannfall á Gasa

Pólskt samfélag á Íslandi: umræða byggð á misskilningi?

Páfanum tekið fagnandi við komuna til Bandaríkjanna

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert