Haldið áfram á ógæfubraut

Björn Bjarnason.
Björn Bjarnason. mbl.is/Sverrir

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, segir á heimasíðu sinni, að Orkuveita Reykjavíkur og Reykjavik Energy Invest sé ekki vandi sjálfstæðismanna einna í borgarstjórn heldur sé þetta vandi allrar borgarstjórnarinnar.

„100 daga stjórnin undir forystu Dags B. Eggertssonar, Svandísar Svavarsdóttur og Björns Inga Hrafnssonar skaut sér undan OR/REI málinu með því að setjast í þagnarbindindi, á meðan það væri til skoðunar. 100 daga skoðunin leiddi ekki til neinnar niðurstöðu.

Af því að meiri kröfur er unnt að gera til sjálfstæðismanna en annarra borgarfulltrúa er eðlilegt, að litið sé til þeirra um forystu til að leysa OR/REI málið með hagsmuni borgarbúa að leiðarljósi.  Sjálfstæðismenn skortir hins vegar afl í borgarstjórn til að standa einir að lausn málsins. Þeir hafa ekki heldur borið gæfu til að halda á málinu á nægilega traustvekjandi hátt. Lausnin er ekki á færi neins eins flokks í borgarstjórn. Á meðan borgarfulltrúar bera ekki gæfu til að mynda neinn meiihluta um að sigla OR úr þessari villu er haldið áfram á ógæfubraut fyrir sjálfstæðismenn og alla aðra í borgarstjórn," segir Björn.

Hann segir einnig, að hann hafi áður fært rök fyrir þeirri skoðun, að slík leyndarhyggja sé innbyggð í stjórnarhætti Orkuveitu Reykjavíkur, að borin von sé að óbreyttu, að tekið sé á málefnum fyrirtækisins eða undirfyrirtækja þess á þann veg, að sæmi fyrirtæki í opinberri eign.

Heimasíða Björns Bjarnasonar 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert