Fleiri mótmælendur handteknir

mbl.is/Júlíus

Lögregla er að handtaka fleiri mótmælendur utan við bensínstöð Olís við Suðurlandsveg skammt frá Rauðavatni. Ekki er um að ræða atvinnubílstjóra heldur menn sem hafa komið á svæðið eftir hádegi og haft sig í frammi og ekki hlýtt fyrirmælum lögreglu.

Mótmælendur á Suðurlandsvegi hafa nú eftir hádegi kastað eggjum í lögregluna núna eftir hádegið, og hefur lögreglan á ný beitt piparúða. Ennfremur hefur lögreglan lagt hald á flutningabíla sem standa á veginum og loka honum. Aðeins tveir bílar eru eftir í vegarkantinum.

Munu það vera hópar unglinga sem kastað hafa eggjunum í skildi lögreglumannanna. Að sögn sjónarvotta eru fáir flutningabílstjórar enn á vettvangi, og þeir sem hafi sig helst í frammi séu unglingar með skrílslæti.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert