Fögnuðu sumri með sjósundi

Piltarnir á leið í sjóinn.
Piltarnir á leið í sjóinn. mynd/bb.is

Nokkrir ungir piltar á Ísafirði ákváðu að sletta úr klaufunum í tilefni þess að sumarið er komið og stungu sér til sjósunds. Þótt sumardagurinn fyrsti væri kominn var sjórinn ansi kaldur en piltarnir létu það   ekki á sig fá.

Á vef Bæjarins besta segir að búast megi við góðu sumri, ef marka má gamla hjátrú, því sumar og vetur frusu saman aðfararnótt sumardagsins fyrsta.

Bæjarins besta

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert