Skipuð forstjóri Varnarmálastofnunar

Ellisif Tinna Víðisdóttir.
Ellisif Tinna Víðisdóttir.

Utanríkisráðherra hefur í dag skipað Ellisif Tinnu Víðisdóttur forstjóra Varnarmálastofnunar til fimm ára frá og með 1. júní nk. en þann dag tekur stofnunin formlega til starfa. 

Verkefni Varnarmálastofnunar eru m.a. rekstur íslenska loftvarnakerfisins, þátttaka í samræmdu loftrýmiseftirliti og loftrýmisgæslu NATO, rekstur, umsjón og hagnýting öryggissvæða og mannvirkja, undirbúningur og umsjón varnaræfinga hérlendis, þátttaka í starfi nefnda og undirstofnana NATO, verkefni sem varða framkvæmd varnarsamningsins, samstarf við alþjóðastofnanir og framkvæmd alþjóðasamþykkta á sviði varnarmála, ráðgjöf til utanríkisráðuneytisins og samstarf við háskóla og alþjóðleg samtök.

Samhliða því að Varnarmálastofnun tekur til starfa 1. júní verður Ratsjárstofnun lögð niður. Ellisif Tinna hefur þegar tekið sæti í starfshópi utanríkisráðherra sem undirbýr gildistöku varnarmálalaganna og upphaf starfa Varnarmálastofnunar. Starfshópurinn ber m.a. ábyrgð á að framkvæma bráðabirgðaákvæði við varnarmálalögin þar sem kveðið er á um að öllu starfsfólki Ratsjárstofnunar á uppsagnarfresti skuli boðin störf hjá Varnarmálastofnun.

Ellisif Tinna er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur að auki BA gráðu í mannfræði frá sama skóla. Ellisif Tinna  hefur verið aðstoðarlögreglustjóri hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum frá stofnun þess embættis og var staðgengill sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli frá 2004. Þar á undan vann hún sem löglærður fulltrúi hjá því embætti frá námslokum og átti sæti í yfirstjórn þess allan þann tíma.

Hún var breytingarstjórnandi hjá Ratsjárstofnun um ríflega tveggja mánaða skeið sl. haust og hefur auk þess mikla reynslu af samskiptum við samstarfslönd innan NATO.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert