Eldhúsdagsumræður í kvöld

Ráðherrabekkur í Alþingishúsinu.
Ráðherrabekkur í Alþingishúsinu. mbl.is/Frikki

Almennar stjórnmálaumræður, svonefndar eldhúsdagsumræður, verða á Alþingi í kvöld og hefjast klukkan 19:50. Umræðurnar verða sendar út í útvarpi og sjónvarpi. Umræðurnar fara þannig fram að hver þingflokkur fær 22 mínútur til umráða sem skiptast í þrjár umferðir, 10 mínútur í fyrstu umferð og 6 mínútur í annarri og síðustu umferð.

Röð flokkanna verður þessi í öllum umferðum:

Vinstri hreyfingin – grænt framboð,
Sjálfstæðisflokkur,
Framsóknarflokkur,
Samfylkingin og
Frjálslyndi flokkurinn.

Fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð tala  Ögmundur Jónasson,  Árni Þór Sigurðsson og  Þuríður Backman. Ræðumenn Sjálfstæðisflokks verða Geir H. Haarde, Guðfinna S. Bjarnadóttir og Kristján Þór Júlíusson. Fyrir Framsóknarflokk tala Guðni Ágústsson, Siv Friðleifsdóttir og  Höskuldur Þórhallsson. Fyrir Samfylkinguna tala Össur Skarphéðinsson , Steinun Valdís Óskarsdóttir og Einar Már Sigurðarson og fyrir Frjálslynda flokkinn Guðjón A. Kristjánsson, Jón Magnússon og Grétar Mar Jónsson.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert