Hraðamyndavélar á Suðurnesjum

Á morgun verður komið fyrir stafrænum hraðamyndavélum á Suðurnesjum.
Á morgun verður komið fyrir stafrænum hraðamyndavélum á Suðurnesjum. mbl.is/Golli

Á morgun verða hraðamyndavélar á Garðskagavegi og Sandgerðisvegi á Suðurnesjum teknar í notkun. Uppsetning vélanna er liður í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda og tilgangurinn að draga úr ökuhraða á þjóðvegum og fækka umferðarslysum.

Samgönguráðuneytið, ríkislögreglustjóri, Umferðarstofa og Vegagerðin vinna að uppsetningu hraðamyndavélanna.  Vélarnar eru stafrænar og verða upplýsingar um hraðabrot sendar samstundis til lögreglunnar.

Í tilkynningu frá lögreglunni segir að ekki verði tekin mynd nema um brot sé að ræða og að myndatakan hafi verið heimiluð af Persónuvernd.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert