Fjöldi eftirskjálfta hefur orðið

Viðbúnaður er á súkrahúsinu á Selfossi vegna jarðskjálftanna.
Viðbúnaður er á súkrahúsinu á Selfossi vegna jarðskjálftanna. mbl.is/Golli

Fjöldi eftirskjálfta hefur orðið við Ingólfsfjall eftir skjálftann stóra, sem varð klukkan 15:46 í dag. Þeir stærstu eru um 3,9 stig á Richter en stóri skjálftinn var 6,1 stig. Að sögn Veðurstofunnar má allt eins búast við öðrum stórum skjálfta á svæðinu en ómögulegt er að spá fyrir um hvort eða hvenær hann ríður yfir.

Allir skjálftarnir hafa orðið á sama sprungusvæðinu og eru upptök þeirra flestra 1-3 kílómetra norðaustur af  Hveragerði. Ekki er ljóst hve margir skjálftarnir eru þar sem sumir þeirra kunna að vera tvítaldir á sjálfvirkum skjálftalista Veðurstofunnar.

Vedur.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert