Sviðsetja vatnspyntingar á Austurvelli

Condoleezza Rice sat í gær ráðstefnu um Írak í Stokkhólmi …
Condoleezza Rice sat í gær ráðstefnu um Írak í Stokkhólmi í Svíþjóð en hún er væntanleg til Íslands í dag. Reuters

Samtök hernaðarandstæðinga munu standa fyrir sýnikennslu með
vatnspyntingarbekk á Austurvelli kl. 17. Condoleeza Rice er sérstaklega
boðin velkomin þangað til að kynna sér hið raunverulega eðli þessarar
píningaraðferðar. Sama máli gegnir um íslenska ráðamenn, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Í dag kemur utanríkisráðherra Bandaríkjanna í stutta heimsókn
til Íslands til fundar með hérlendum ráðamönnum. Að þessu tilefni vilja
Samtök hernaðarandstæðinga beina athygli að því hvernig bandarísk yfirvöld hafa kerfisbundið grafið undan mikilvægum mannréttindasáttmálum undir flaggi „stríðs gegn hryðjuverkum", að því er segir í tilkynningu.

„Ein birtingarmynd þessa er notkun Bandaríkjahers og samherja hans á
pyntingum, sem sætt hafa alþjóðlegri fordæmingu. Þekkt pyntingaraðferð af þessu tagi felst í því að binda fanga við planka og hella vatni yfir vit
hans til að skapa drukkunartilfinningu. Bandarísk stjórnvöld þræta fyrir
að sú aðferð teljist til pyntinga," að því er segir í tilkynningu frá Samtökum hernaðarandstæðinga.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert