Stór spilda skreið fram í Grafningi

Mynd/Ragnar Eldon Haraldsson

Jarðhræringarnar í fyrradag ollu því að stór spilda við veginn um Grafning skreið fram í Þingvallavatn. Skarðið náði inn í veginn og var veginum lokað fyrir umferð um tíma.

Nokkrar skemmdir urðu á vegum í jarðskjálftunum samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar. Víða eru ójöfnur á vegum og eru vegfarendur því beðnir að gæta fyllstu varúðar á jarðskjálftasvæðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert