Rauði krossinn á vaktinni

Víða urðu miklar skemmdir í Hveragerði og á Selfossi eftir …
Víða urðu miklar skemmdir í Hveragerði og á Selfossi eftir skjálftann mikla sem reið yfir á fimmtudag. mbl.is/Kristinn

Rauði krossinn verður með vakt í Hveragerði og á Selfossi eftir lokun þjónustumiðstöðva í kvöld, sunnudag. Fólki er einnig bent á að hringja í Hjálparsíma Rauða krossins 1717 til að leita sér upplýsinga og aðstoðar. Hjálparsíminn er opinn allan sólarhringinn og er gjaldfrjáls.

Í Hveragerði verða sjálfboðaliðar við í húsnæði Rauða krossins í Austurmörk frá klukkan 19 í kvöld til miðnættis. Þá verða sjálfboðaliðar á vakt á Selfossi í húsnæði Rauða krossins að Eyrarvegi 23 frá klukkan 19 til miðnættis.

Áfallahjálparteymi Rauða krossins verður að störfum í þjónustumiðstöðvunum á Selfossi og í Hveragerði næstu daga frá klukkan 17 til 20.


Borgarafundir verða haldnir í dag í Sunnulækjarskóla á Selfossi klukkan 17 og í félagsheimilinu Stað á Eyrarbakka klukkan 20:30. Íbúar eru hvattir til að sækja fundina en þar verða fyrir svörum fulltrúar Rauða krossins, sveitarfélagins, almannavarna, lögreglu, Slysavarnafélagsins Landsbjargar, heilbrigðisþjónustu og Viðlagatryggingar Íslands.

Hægt er að sækja upplýsingar um sálrænan stuðning og upplýsingar um viðbrögð við alvarlegum atburðum hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert