Þriðji björninn á Hveravöllum?

Grunsamleg spor fundust í grennd við Hveravelli en fundust ekki …
Grunsamleg spor fundust í grennd við Hveravelli en fundust ekki aftur við frekari leit. mbl.is/RAX

Í morgun barst lögreglunni á Blönduósi tilkynning frá umsjónarmanni á Hveravöllum að fyrr um morguninn hafi tveir erlendir ferðamenn farið í gönguferð frá Hveravöllum áleiðis að Þjófadölum og rekist á bjarndýrsspor. 

Ferðamennirnir, sem eru pólskir, munu hafa spurt hvaða dýrum þau mættu búast við að mæta í gönguferðum á Íslandi.  Þau hafi komið í moldarflag þar sem þau hafi séð spor eftir bjarndýr og sögðust þau þekkja slík spor frá heimalandi sínu.

Í tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi segir að lögreglan hafi fengið ferðamennina til að fara til baka til Hveravalla, ásamt tveimur lögreglumönnum,  svo skoða mætti sporin betur. 


Viðbúnaðaráætlun var sett í gang með því að kynna helstu stofnunum og embættum, sem málið varðar, þessa stöðu.  Þyrla Landhelgisgæslunnar var við æfingar nærri Hveravöllum og litaðist áhöfn hennar um á svæðinu.


Í tilkynningu lögreglunnar segir að þrátt fyrir mikla leit við Hveravelli hafi ekki tekist að finna þessi spor aftur en þar er jafnframt tekið fram að þessir erlendu ferðamenn virki mjög trúverðugir.


Þó svo að þessar upplýsingar sýnist vera ótrúlegar er brýnt fyrir fólki að fara með fullri gát og hafa  þetta í huga.  Ekki er búið að taka ákvarðanir um frekari aðgerðir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert