Karíus og Baktus á Esjunni

Frá Esjudeginum í dag.
Frá Esjudeginum í dag. mbl.is/Kristinn

Esjudagurinn var haldinn hátíðlegur í dag á vegum Ferðafélags Íslands og SPRON. Boðið var upp á ýmsar Esjugöngur, bæði upp á topp og skemra. Skógræktarfélag Reykjavíkur gaf plöntur í tilefni dagsins og meðal skemmtiatriða voru Karíus og Baktus.

Frá þessu greinir í fréttatilkynningu frá FÍ og SPRON í dag. Þar segir ennfremur:

„Ferðafélag Íslands og SPRON hafa átt samstarf í fjölmörg ár. Áhersla hefur verið lögð á að kynna Esjuna sem einstakt útivistarsvæði við borgarmörkin. Saman hafa SPRON og Ferðafélagið unnið að gerð göngustíga og merkinga.  Esjan er eitt vinsælasta útivistarsvæði höfuðborgarbúa og ganga um 15.000 manns á fjallið árlega.“
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert