Göngumaður sneri sig á fæti á Esjunni í kvöld og talið er að hann hafi fótbrotnað að sögn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Atvikið átti sér stað við rætur Esjunnar um átta leytið.
Sjúkrabíll var sendur á vettvang með sérhæfðan björgunarbúnað til þess að flytja manninn niður. Að sögn slökkviliðs var göngumaðurinn ekki kominn langt upp þegar atvikið átti sér stað.