Viðbúnaður vegna flugvélar

Flugvirkjar og slökkviliðsmenn huga að hreyfli vélarinnar eftir lendinguna.
Flugvirkjar og slökkviliðsmenn huga að hreyfli vélarinnar eftir lendinguna. mbl.is/Hilmar Bragi

Flugvél Icelandair til New York sem tók á loft klukkan 17:15 var snúið við aftur vegna gangtruflana í hreyfli. Fullur viðbúnaður var á flugbrautinni en vélin lenti heilu og höldnu klukkan 17:26.

Flugstjóri vélarinnar varð var við gangtruflanir í hreyfli við flugtak og ákvað að lenda vélinni aftur. Var því fullur viðbúnaður á vellinum er vélin lenti. Enginn um borð mun hafa meiðst og gekk lendingin vel. Stendur vélin á brautinni og verið er að kanna ástand hennar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert