Ekkert flogið frá Bakka til Eyja

Úr Herjólfsdal um helgina.
Úr Herjólfsdal um helgina.

Ekkert hefur verið flogið frá Bakka til Vestmannaeyja í dag vegna veðurs en þar höfðu 350 manns átt pantað flug til þess að vera með síðasta kvöldið á þjóðhátíð.  Hins vegar hefur verið flogið frá Reykjavík í dag og Herjólfur kom með talsvert af fólki síðdegis.

Lögregla áætlar að um 13 þúsund manns hafi verið í Herjólfsdal í gærkvöldi sem er um 3000 fleira en voru á þjóðhátíð í fyrra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert