Lenti út af Drottningarbraut

Tívolíið er vel sótt á Akrureyri um helgina.
Tívolíið er vel sótt á Akrureyri um helgina. mbl.is/Þorgeir

Bíll fór út af Drottningarbraut á Akureyri inn á afleggjarann að flugstöðinni í gærkvöldi. Valt bíllinn í beygjunni og hafnaði úti í skurði. Tveir ungir karlmenn voru í bílnum en þeir sluppu án meiðsla. Lögregla hefur þá grunaða um að hafa verið undir áhrifum áfengis og vímuefna.

Þar fyrir utan urðu nokkrir smáárekstrar á Akureyri í gærkvöldi og nótt en engin slys á fólki.

Lögregla segir, að skemmtanahald tengt hátíðinni Einni með öllu hafi farið vel fram í bænum og engin alvarleg mál komu á borð lögreglu. Nokkrir, sem voru  hvíldarþurfi, gistu fangageymslur en að öðru leiti gekk næturlífið vel og lítið var um óspektir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert