Erilsamt hjá lögreglu í Herjólfsdal

Mikið var að gera hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í nótt en þjóðhátíð í Vestmannaeyjum lauk í morgun. Talsvert var um pústra og ólæti og nokkur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar, sem segir þó að engin alvarleg atvik hafi orðið.

Þoka er í Vestmannaeyjum og því er ekki hægt að fljúga þaðan eins og stendur. Vonast er þó til að þokunni létti með morgninum. Herjólfur fer fyrstu ferð frá Eyjum með þjóðhátíðargesti klukkan 11.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert