Fangar bíða eftir bótum

Allnokkrar skemmdir urðu á eignum fanga á Litla-Hrauni í Suðurlandsskjálftunum í lok maí síðastliðins. Jafnframt urðu talsverðar skemmdir á innanstokksmunum í fangelsinu sjálfu og á byggingunum sjálfum.

Margrét Frímannsdóttir, forstöðukona fangelsisins, segir að ekki sé búið að ganga frá bótum vegna skemmdanna en málið sé í ferli. Margrét segir að búið sé að skila skýrslum um allar skemmdir á innbúi en enn eigi eftir að vinna verkfræðimat á skemmdum á byggingum. „Það skemmdust hjá okkur tölvuskjáir og sjónvörp og aðrir munir sem hrundu í gólfið. Hið má segja hið sama um eignir fanganna, það varð tjón á tölvum og sjónvörpum. Í langflestum tilvikum voru það þeirra eignir og fæstir þeirra eru með sínar eignir tryggðar. Við mynduðum allt og skiluðum skýrslum til Ólafs Arnar Haraldssonar, verkefnisstjóra þjónustumiðstöðvar vegna jarðskjálftanna.“

Margrét segir enn ekki búið að meta hversu mikið tjónið sé en hún vonist til að það gangi vel og fljótt fyrir sig. „Ég hef fulla trú á því að það gerist. Flestir fanganna hafa fengið önnur tæki í stað þeirra sem skemmdust og þá í mörgum tilvikum í gegnum aðstandendur.“
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert