Vill auka samstarf við minnihluta

Hanna Birna ásamt fjölskyldu sinni: Vilhjálmur Jens Árnason heimspekingur, Aðalheiður …
Hanna Birna ásamt fjölskyldu sinni: Vilhjálmur Jens Árnason heimspekingur, Aðalheiður og Theódóra Guðný. mbl.is/Golli

Hanna Birna Kristjánsdóttir, nýr borgarstjóri Reykjavíkurborgar, segir að mest aðkallandi verkefni hins nýja meirihluta sé að koma á öryggi og festu í stjórnkerfinu og tryggja að ákvarðanir gangi hratt og örugglega fyrir sig.

„Hægagangur hefur verið inngróinn í kerfið of lengi og það þarf að snúa því blaði við. Það þarf að sýna að Reykjavíkurborg er nútímalegt fyrirtæki sem klárar hlutina,“ segir Hanna Birna.

Hanna Birna telur mikilvægt að efla samstarfið við minnihlutann, það skili sér í vandaðri ákvarðanatöku og efli traust. „Ég hef boðað stóraukið samstarf við minnihlutann og vil gjarnan formgera það samstarf með einhverjum hætti. Ég er þeirrar skoðunar að of oft séu átök í borgarstjórn átakanna vegna. Ég er sannfærð um að því fleiri sjónarmið sem koma að, því sterkari og betri verði niðurstaðan.

Það breytir því ekki að hér er ábyrgur og sterkur meirihluti. Við eigum samt að auka aðkomu minnihlutans að ákvarðanatöku og efla traust. Það auðveldar öll störf og skilar sér nánast undantekningalaust í góðum ákvörðunum.“

Unnið eftir hugmyndasamkeppninni um Vatnsmýrina

Nýr meirihluti vill strax fara í viðræður við ríkisvaldið um framtíð flugvallarins. „Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að svæðið undir flugvellinum sé besta byggingasvæðið í Reykjavík. Áður en ákvarðanir eru teknar um flutning flugvallarins verður hins vegar að finna honum nýja staðsetningu sem sátt getur náðst um. [...]Þess vegna verðum við að byrja að svara því hvar flugvöllurinn eigi að vera.

Við munum strax fara í viðræður við ríkisvaldið um framtíð flugvallarins. Við munum halda áfram uppbyggingu í grennd við Vatnsmýrina á grundvelli hugmyndasamkeppninnar sem efnt var til. Ég er þeirrar skoðunar að sú hugmyndasamkeppni sé eitt mesta framfaraskref sem stigið hefur verið í íslenskum skipulagsmálum.“

Hanna Birna segist þeirrar skoðunar að ekki sé raunhæft að klára staðsetningu flugvallarins á þessu kjörtímabili.

„Ég held að þetta [viðræður við ríkið um framtíð flugvallar] sé besta skrefið sem hægt sé að taka á þessum tímapunkti. Þessari hugmynd, að flugvöllurinn eigi ekki að vera þarna, þarf ég augljóslega að vinna aukið fylgi.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert