Minna á skyldur borgarinnar

Reykjavíkurflugvöllur
Reykjavíkurflugvöllur mbl.is/Golli

Bæjarráð Akureyrarbæjar samþykkti í gær samhljóða bókun um framtíðarstaðsetningu Reykjavíkurflugvallar þar sem minnt er á þá ábyrgð og skyldur sem höfuðborg landsins beri gagnvart landsmönnum öllum.

„Að mati bæjarráðs eru greiðar flugsamgöngur landsbyggðarinnar til Reykjavíkur forsenda þess að borgin geti gegnt hlutverki sínu sem höfuðborg landsins alls. Í höfuðborginni eru höfuðstöðvar stjórnsýslu Íslands auk fjölda opinberra viðskipta-, mennta-, menningar- og heilbrigðisstofnana sem eiga þar einnig sínar höfuðstöðvar. Bæjarráð hvetur borgarstjórn Reykjavíkur til að hafa framangreind atriði í huga við umfjöllun sína um framtíðarstaðsetningu innanlandsflugvallarins,“ segir í bókuninni.

Þá er ítrekuð fyrri afstaða vegna málsins og bent á að ef innanlandsflugvöllur verði fluttur úr miðborginni sé verið að takmarka aðgengi landsbyggðarfólks að miðstöð stjórnsýslu, þjónustu og viðskipta.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert