Fundur að hefjast með ljósmæðrum

Frá fundi ljósmæðra.
Frá fundi ljósmæðra. mbl.is/Árni Sæberg

Sáttafundur er nú að hefjast í húsnæði ríkissáttasemjara með fulltrúum ljósmæðra og fjármálaráðuneytisins. Viðræður um nýjan kjarasamning ljósmæðra hafa verið árangurslausar og hafa ljósmæður farið í tvö tveggja sólarhringa verkföll til að leggja áherslu á kröfur sínar um 25% grunnlaunahækkun.

Boðað hefur verið til nýs þriggja sólarhringa verkfalls  17.-19. september hafi ekki náðst samningar fyrir þann tíma.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert