Missti bíl út af skammt frá Staðarskála

Tvennt slasaðist þegar ökumaður missti jeppling út af veginum skammt frá Staðarskála rétt fyrir klukkan ellefu í morgun. Voru þau flutt til aðhlynningar á heilbrigðisstofnunina á Hvammstanga. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Blönduósi var bæði snjór og krap á veginum og aðstæður erfiðar. Bifreiðin, sem fór eina veltu og lenti á hjólunum, er talin ónýt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert