Enn rætt við Rússa um lán

Viðræður Rússa og Íslendinga um hugsanlega lánveitingu Rússa til Íslendinga standa enn yfir samkvæmt upplýsingum Alexei Kudrin, fjármálaráðherra Rússlands. Áður hafði verið greint frá því í nokkrum rússneskum fjölmiðlum að Rússar hefðu hafnað beiðni Íslendinga um lán. Þetta kemur fram á fréttavefnum Novosti.

„Viðræðurnar halda áfram,” segir Kudrin og bætir því við að litið sé jákvæðum augum á beiðni Íslendinga um lán en að ákvörðun verði ekki tekin fyrr en að viðræðum loknum.

Greint er frá því í frétt Novosti að íslensk sendinefnd hafi komið til Moskvu um miðjan október. Þá kemur þar fram að Seðlabanki Íslands hafi lýst því yfir þann 7. október að Rússar hefðu samþykkt að veita Íslendingum fjögurra milljóna evra lán.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert