Hannes vísar ásökunum á bug

Hannes Smárason
Hannes Smárason mbl.is/Golli

Hannes Smárason hafnar því alfarið, sem fram kom í sunnudagsblaði Morgunblaðsins, að hann hafi sumarið 2005, þegar hann var stjórnarformaður FL, látið flytja án heimildar þrjá milljarða króna af reikningum FL til Kaupþings í Lúxemborg, til þess að hjálpa Pálma Haraldssyni við að greiða fyrir kaupin á lággjaldaflugfélaginu Sterling í Danmörku.

Hannes hefur sent frá sér yfirlýsingu um málið sem er eftirfarandi:

„Í tilefni af skrifum blaðamanns Morgunblaðsins í sunnudagsblaðinu í dag og þeim aðdróttunum sem þar eru þá er þeim alfarið hafnað. Engin lög voru brotin eins og gefið er í skyn og er allur málflutningur í fréttinni afar ósmekklegur. FL group lét gera óháða úttekt á þessu máli í aðdraganda aðalfundar félagsins 2006 og hefur ítrekað svarað þessum fullyrðingum.

Í þessu sambandi er rétt að rifja upp aðalfund félagins frá árinu 2006 þar sem þetta mál var til umræðu. Á fundinum komu fram spurningar frá Vilhjálmi Bjarnasyni um ólögmætar millifærslur og svör í tengslum við þessar meintu millifærslur félagsins, lögmæti þeirra og niðurstöður sérstakrar rannsóknar sem stjórn félagsins lét framkvæma. Auðveldast er að vitna hér til orða Jóns S. Helgasonar endurskoðanda hjá KPMG um þessi mál frá aðalfundinum 2006:

„Jón S. Helgason löggiltur endurskoðandi hjá KPMG tók þvínæst til máls að beiðni Stjórnarformanns. Hann áréttaði að endurskoðendur hefðu áritað síðasta uppgjör félagsins án athugasemda og þar kæmi fram að þeir styddust við alþjóðlegar reglur. Hann sagði að fram hefði farið skoðun á stærri færslum hjá FL Group á því tímabili (innskot: sumarið 2005 sérstaklega) sem Vilhjálmur Bjarnason væri að spyrja um. Málum væri þannig háttað að töluverðir fjármunir væru í ávöxtun á hverjum tíma, en skemmst væri frá því að seigja að allar útborganir félagsins hefðu skilað sér til baka með eðlilegri ávöxtun innan mislangs tíma og hann gæti staðfest að þar væru engar slíkar greiðslur sem Vilhjálmur vísaði til“.

Þessi yfirlýsing var birt og undirrituð athugasemdalaust af fundarstjóra og fundaritara og var öllum hluthöfum gefinn kostur á að lesa hana yfir og koma með athugasemdir sem engar bárust. Þá hafa hluthafar og fjölmiðlar haft aðgang að fundargerðinni eins og lög kveða á um.


Einnig skal bent á að hluthafafundur almenningshlutafélags er æðsta vald félagsins og þar gefst öllum kostur á að koma fyrirspurnum sínum á framfæri.

Virðingarfyllst,

Hannes Smárason“.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert