Bjarni segir af sér

Bjarni Harðarson.
Bjarni Harðarson.

Bjarni Harðarson hefur ákveðið að segja af sér þingmennsku. Þetta kemur fram á bloggsíðu Bjarna og segist hann hafa  tilkynnt formanni Framsóknarflokksins og skrifstofustjóra Alþingis þessa ákvörðun sína.

„Í gærkvöldi urðu mér á alvarleg mistök og vitaskuld hljóp hér pólitískur hiti með mig í gönur.  Ég hef af þeirri ástæðu ákveðið að segja af mér þingmennsku enda hefur það ævinlega verið bjargföst sannfæring mín að menn eigi alltaf að axla ábyrgð á eigin gerðum. Um leið og ég kveð stuttan og viðburðaríkan þingferil óska ég samstarfsfólki mínu á þingi og í Framsóknarflokki allra heilla," segir Bjarni á bloggsíðunni. 

Helga Sigrún Harðardóttir, skrifstofustjóri þingflokks Framsóknarflokksins, var í 3. sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi í Alþingiskosningunum vorið 2007.  

Bloggsíða Bjarna Harðarsonar

Helga Sigrún Harðardóttir.
Helga Sigrún Harðardóttir. mynd/sudurland.is
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert