Óska eftir vængjum

mbl.is/Ingólfur

Fyrstu niðurstöður Náttúrufræðistofnunar varðandi aldursgreiningar veiddra rjúpna á yfirstandandi veiðitímabili sýna að hlutfall ungfugla af heildinni er 78%. Samtals er búið að aldursgreina 599 fugla og er stærstur hluti þeirra, um 60%, af Norðausturlandi. 

Náttúrufræðistofnun hvetur rjúpnaskyttur til að klippa annan vænginn af rjúpum sem þær veiða og senda stofnuninni. Af vængjunum má ráða hvort um er að ræða fugl á fyrsta ári eða eldri fugl. Fuglum af sama veiðisvæði eða úr sömu sveit þarf að halda saman í poka þannig að hægt sé að sundurgreina sýnin eftir landshlutum. Nánari upplýsingar um hvernig skila má vængjum er að finna á heimasíðu stofnunarinnar.

Stefnt er að því að aldursgreina 400−500 fugla úr hverjum landshluta, þannig að mikið vantar enn uppá fullt sýni.

Niðurstöður verða birtar jafnóðum á vef NÍ en þær verða meðal annars notaðar við mat á stofnstærð rjúpunnar í landinu.

 Stefnt er að því að aldursgreina 400−500 fugla úr hverjum landshluta, þannig að mikið vantar enn uppá fullt sýni.

Frétt Náttúrufræðistofnunar um aldurshlutföll rjúpna

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert