Örsmár hópur ungmenna grýtir þinghúsið

mbl.is/Julíus

Lítill hópur ungmenna, 14 til 16 ára, er enn á Austurvelli að grýta Alþingishúsið. Eggjum, tómötum, melónum og jógúrt hefur verið grýtt í þinghúsið og þá hefur flöskum og steinum verið grýtt í veggi Alþingishússinss. Um sex þúsund manns komu saman til friðsamlegra mótmæla á Austurvelli klukkan þrjú en örsmár hópur ungmenna tók sig fljótt út og hóf að grýta Alþingishúsið. Lögregla heldur sig til hlés vegna framferðis ungmennanna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert