Hækkun tekjuskatts og útsvars 1,5%

Tekjuskattur verður hækkaður um 1,25 prósentur, úr 22,75% í 24%, og sveitarfélögum verður heimilt að hækka útsvar um 0,25 prósentur, úr 13,03% í 13,28% samkvæmt nýju frumvarpi um ráðstafanir í ríkisfjármálum, sem lagt var fram á Alþingi í kvöld. Samtals verður skatthlutfall í staðgreiðslu því allt að 37,28%.

Fram kemur í greinargerð með frumvarpinu að markmiðið með hækkun tekjuskatts sé tvíþætt. Annars vegar sé hækkun um 1% til að mæta versnandi afkomu ríkissjóðs og er áætlað er að sú hækkun skili ríkissjóði nálægt 7 milljörðum króna. Hins vegar sé hækkun um 0,25% sem sé ætlað að fjármagna sérstakt 1 milljarðs króna framlag ríkisins til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og greiðslur ríkissjóðs á fasteignagjöldum eða samtals um nálægt 1,5 milljörðum króna.

Áætlað er að hækkun útsvarsins geti skilað sveitarfélögum allt að 2 milljörðum króna í útsvarstekjur miðað við það að öll sveitarfélög landsins fullnýti heimildina. Almennur frestur til að taka ákvörðun um útsvar komandi tekjuárs er samkvæmt lögum 1. desember en í  frumvarpinu er lagt til til að sveitarfélög hafi frest til loka árs 2008 til að taka ákvörðun um útsvarsprósentu og tilkynna hana til fjármálaráðuneytisins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert