Opið er í jólaskóginum í Hjalladal í Heiðmörk í dag og til fjögur á morgun, að því er segir í fréttatilkynningu frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur. Vegagerðin hefur rutt alla vegi og færðin er góð um svæðið. Tekið er fram að allir megi koma og höggva sér jólatré.