Fólk mun berjast fyrir sínu

Sæunn Stefánsdóttir
Sæunn Stefánsdóttir

„Ég held að fólk ætli að berjast eins og það getur og láta ekki fólk sem er nýkomið í flokkinn ýta þeim sem lengur hafa starfað úr vegi,“ segir Sæunn Stefánsdóttir, ritari Framsóknarflokksins um atburði á fundi Framsóknarfélags Reykjavíkur í gærkvöldi.

Hópur félaga úr Framsóknarflokknum, þar á meðal Sæunn Stefánsdóttir og Jón Sigurðsson, fyrrverandi formaður, hefur sent frá sér yfirlýsingu, þar sem fullyrt er að fjandsamleg yfirtaka hafi farið fram á fundi félagsins í fyrrakvöld, þar sem skráðir voru 70 nýir félagar undir lok dags.

Ólýðræðisleg vinnubrögð

„Með þeim hætti var félagið tekið yfir og tillaga borin fram um nýjan fulltrúalista á flokksþing í stað þess sem stjórn hafði lagt fram. Sá listi var tilraun til að hleypa að öllum sjónarmiðum og því að okkar mati lýðræðislega unninn. Jafnframt var gerði tilraun til að setja fundarstjóra af til að ná tökum á fundinum. Ekki kom fram að yfirtakan byggði á nokkrum málefnalegum grundvelli heldur var tilgangurinn greinilega sá að fá nýjan hóp framsóknarmanna með atkvæðisrétt á flokksþingið sem framundan er,“ segir m.a. í yfirlýsingu hópsins.

„Ég er sorgmædd yfir því að Framsóknarflokkurinn skuli ekki nýta sér það tækifæri sem nú gefst til þess að kjósa sér nýja forystu, móta stefnu og velja ný vinnubrögð á væntanlegu flokksþingi. Ég tel að þeir sem að þessu stóðu á fundinum í gær hafi litið framhjá þessu tækifæri,“ segir Sæunn Stefánsdóttir.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert