Hnífsstunga á Miklubraut

Tilkynnt var um hnífsstungu til lögreglunnar í Reykjavík kl. 14:43 í dag. Maður var stunginn í öxlina í íbúðarhúsnæði við Miklubraut, en að sögn lögreglu er óljóst með málavöxtu. Einn maður var þó handtekinn á staðnum vegna málsins.

Hinn stungni var fluttur á slysadeild en hann virðist ekki vera mikið særður, að sögn lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert