Yfir 2 þúsund sæti seld til Boston

Icelandair
Icelandair

Alls hafa selst ríflega tvö þúsund sæti í tilboði Icelandair til Boston, að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa Icelandair. Ferðatímabilið er febrúar og mars en miðinn aðra leið kostar 13.745 krónur og 27.490 krónur báðar leiðir. Segir Guðjón að þessi góðu viðbrögð sýni að ferðalög eru snar þáttur í lífi Íslendinga. Einungis er hægt að bóka þessi fargjöld í tvo daga, í gær og í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert