Hátt í 400 handtökuskipanir

Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður
Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður mbl.is

Gefnar verða út 370 handtökuskipanir á einstaklinga í Árnessýslu í vikunni. Um er að ræða fólk sem ekki hefur skilað sér í fjárnám hjá embætti sýslumannsins á Selfossi. „Það er algjört neyðarbrauð að þurfa að gera þetta,“ segir Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi.

 Fjárnámsbeiðnum hafi fjölgað og það hafi eins aukist að fólk mæti ekki í fjárnám. „Hvort það er vegna þess að þetta er ekki fremst í forgangsröðinni veit ég ekki,“ segir hann. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert