Heimilt verður að veiða allt að 1333 hreindýr á tímabilinu 1. ágúst til 15. september 2009, samkvæmt auglýsingu Umhverfisstofnunar. Að auki verður heimilt að veiða hreindýrakálfa sem fylgt hafa felldum kúm, en þá skal fella sé þess kostur. Langflest dýrin eða 670 verður heimilt að veiða á Norður-Héraði.
Alls voru veidd 1318 hreindýr af 1333 dýra kvóta á síðasta veiðitímabili.
Heimild Umhverfisstofnunar vegna veiði þessa árs er veitt með fyrirvara um að ekki verði verulegar breytingar á stofnstærð fram að veiðum sem kalli á endurskoðun fjölda veiðiheimilda. Umhverfisstofnun getur heimilað tarfaveiði frá 15. júlí 2009, en þó með þeim fyrirvara að fram til 1. ágúst séu tarfar ekki veiddir ef þeir eru í fylgd með kúm eða ef veiðar trufla kýr og kálfa í sumarhögum.
Veturgamlir tarfar eru alfriðaðir og miðast tarfaveiði því við tveggja vetra og eldri tarfa.
Umhverfisstofnun auglýsir og sér um sölu allra veiðiheimilda.
Veiðiheimildir árið 2009 skiptast sem hér segir eftir veiðisvæðum og kyni dýra:
Kýr Tarfar Alls
Svæði 1 11 66 77
Svæði 2 536 134 670
Svæði 3 40 20 60
Svæði 4 27 13 40
Svæði 5 83 40 123
Svæði 6 10 25 35
Svæði 7 100 60 160
Svæði 8 91 35 126
Svæði 9 27 15 42
Samtals 925 408 1333
Veiðisvæðin skiptast þannig eftir sveitarfélögum:
Svæði 1 Vopnafjarðarhreppur og Norður Hérað, þ.e. áður Jökuldalur norðan Jökulsár á Brú og Jökulsárhlíð
Svæði 2 Norður Hérað, áður Jökuldalur austan Jökulsár á Brú og Hróarstunga. Einnig Fellahreppur, Fljótsdalshreppur og Austur Hérað (þ.e. Vellir vestan Grímsár og Skriðdalur vestan Grímsár)
Svæði 3 Austur Hérað, áður Hjaltastaðaþinghá, Eiðaþinghá og Borgarfjarðarhreppur
Svæði 4 Austur Hérað, áður Vellir austan Grímsár og Seyðisfjörður og Mjóifjörður
Svæði 5 Fjarðabyggð, áður Eskifjörður/Norðfjörður og Reyðarfjörður í Fjarðabyggð
Svæði 6 Austur Hérað, áður Skriðdalur austan Grímsár og Breiðdalshreppur
Svæði 7 Djúpavogshreppur, áður Beruneshreppur, Búlandshreppur og Geithellnahreppur
Svæði 8 Hornafjörður, áður Bæjarhreppur og Nesjahreppur
Svæði 9 Hornafjörður, áður Mýrahreppur og Borgarhafnarhreppur (Suðursveit)
Þrátt fyrir skiptingu veiðiheimilda eftir veiðisvæðum getur Umhverfisstofnun, í samráði við Náttúrustofu Austurlands, fært veiðiheimildir milli samliggjandi veiðisvæða, þyki sýnt að hjarðir hafi fært sig milli þessara veiðisvæða eða aðrar sérstakar ástæður gefa tilefni til.