Landssamband íslenskra útvegsmanna segist fagna þeirri ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að heimila hvalveiðar í atvinnuskyni í sumar. LÍÚ hafi ítrekað hvatt til þess undanfarin ár að hvalveiðar í atvinnuskyni verði hafnar á ný.
„Íslendingum ber að gæta vel að rétti sínum til nýtingar hvalastofna við landið. Grundvallaratriði er að landsmönnum verði hvorki meinað að nýta auðlindir hafsins á sjálfbæran hátt, né að viðhalda jafnvægi milli tegunda. Hvalastofnar við Íslandsstrendur eru ekki í útrýmingarhættu heldur í stöðugum vexti og eru nú taldir nálægt upprunalegri stærð," segir á vef LÍÚ.