Óvíst með Frjálslynda

Guðjón A. Kristjánsson ræðir við fréttamenn eftir fundinn með formönnum …
Guðjón A. Kristjánsson ræðir við fréttamenn eftir fundinn með formönnum VG og Samfylkingarinnar. Árni Sæberg

Ekki hefur verið ákveðið hvort Frjálslyndi flokkurinn styðji minnihlutastjórn Samfylkingar og VG, að því er fram kom í máli Guðjóns A. Kristjánssonar, formanns Frjálslyndra, þegar hann gekk út af fundi með formönnum flokkanna tveggja.

„Við styðjum góð mál hvaðan sem þau koma. Við höfum alltaf gert það,“ sagði Guðjón og bætti við að enn sem komið er væri bara um vangaveltur að ræða og vinna þyrfti meira í málunum áður en uppröðun á verkefnum liggur fyrir og í hvaða röð fara á með þau í gegnum þingið. Mikið verk væri óunnið í þeim efnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert