Undirbýr Eftirlitsstofnun heilbrigðisþjónustu

mbl.is/Ómar

Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, hefur sent út til umsagnar frumvarpsdrög þar sem gert er ráð fyrir að breyta í grundvallaratriðum hlutverki og skipulagi eftirlits- og forvarnastofnana sem ríkið rekur.

Samkvæmt frumvarpsdrögunum mun ný stofnun, Eftirlitsstofnun heilbrigðisþjónustu, taka við verkefnum frá Lyfjastofnun og verkefnum landlæknis er varða eftirlitshlutverk embættisins.

Þar með yrðu andlæknisembættið, þ.e.a.s. eftirlitsþáttur starfseminnar, Lyfjastofnun og lyfjagreiðslunefnd sameinuð í eina stofnun. Hugmyndin er að byggja með þessu upp eina öfluga eftirlits- og stjórnsýslustofnun sem falið yrði að hafa eftirlit með öllum þáttum er snúa að heilbrigðisþjónustunni.

Frumvarpsdrögin gera ráð fyrir að hlutverk Eftirlitsstofnunar heilbrigðisþjónustu yrði m.a. eftirfarandi:

- að hafa eftirlit með heilbrigðisþjónustu og heilbrigðisstarfsmönnum,
- að hafa eftirlit með lyfjaávísunum og fylgjast með og stuðla að skynsamlegri lyfjanotkun landsmanna,
- að safna og vinna upplýsingar um heilbrigðisþjónustu,
- að veita starfsleyfi til einstaklinga sem uppfylla skilyrði laga og reglugerða til notkunar starfsheita löggiltra heilbrigðisstétta,
- að vinna að gæðaþróun innan heilbrigðisþjónustu,
- að sinna kvörtunum almennings vegna heilbrigðisþjónustu
- að leggja faglegt og heilsuhagfræðilegt mat á þær aðferðir sem boðið er upp á í heilbrigðisþjónustunni.

Í drögunum er gert ráð fyrir að hlutverk lýðheilsustofnunar yrði m.a. eftirfarandi:

- að veita ráðgjöf um heilbrigðismál,
- að safna og vinna upplýsingar um heilsufar og heilbrigðisþjónustu,
- að fylgjast með heilbrigði landsmanna,
- að annast þau verkefni sem sóttvarnalækni eru falin samkvæmt sóttvarnalögum,
- að efla lýðheilsu- og forvarnarstarf í samvinnu við aðra sem að þeim málum starfa,
- að annast forvarna- og heilsueflingarverkefni,
- að annast fræðslu til almennings og annarra um heilbrigði og heilsueflingu og styðja starfsemi stofnana og frjálsra félagasamtaka til eflingar lýðheilsu og forvarna,
- að efla kennslu og rannsóknir á sviði lýðheilsu og stuðla að samstarfi við háskóla og aðrar menntastofnanir,
- að beina tillögum til stjórnvalda um aðgerðir til að efla lýðheilsu og forgangsröðun verkefna.

Heilbrigðisráðherra ætlar að með þessu fyrirkomulagi nýtist sérhæfing betur og að með þessu verði til skilvirkari stjórnsýslu og samhæfðara eftirlit með fjölbreyttum þáttum heilbrigðisþjónustunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert