Fundu 530 kannabisplöntur í janúar

Lögreglan lagði hald á 530 kannabisplöntur í janúar. Myndin tengist …
Lögreglan lagði hald á 530 kannabisplöntur í janúar. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á 530 kannabisplöntur í janúar. Plönturnar, sem flestar voru á lokastigi ræktunar, fundust við húsleitir á ýmsum stöðum í umdæminu, en um er að ræða allnokkur aðskilin mál. Það nýjasta kom upp á Álftanesi í gær, segir á vef lögreglunnar.

Þar segir jafnframt að samhliða þessu hafi verið lagt hald á ýmsan búnað sem tengist starfseminni, m.a. nokkurt magn gróðurhúsalampa.

Þá stöðvaði lögreglan kannabisræktun sem var í burðarliðnum í húsi í Hafnarfirði en þar var fyrirhuguð framleiðsla í töluverðu mæli. Þess má geta að árið 2008 lagði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hald á um 700 kannabisplöntur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert