Dæmdir fyrir hættulegar líkamsárásir

mbl.is/ÞÖK

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt tvo karlmenn í skilorðsbundið fangelsi fyrir sérlega hættulegar líkamsárásir, sem báðar voru tilefnislausar.

Um er að ræða tvö aðskilin mál. Var annar mannanna dæmdur í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að slá annan mann með glerglasi í andlitið og hinn fyrir að slá mann í andlitið með flösku og krepptum hnefa. 

Sá sem þyngri dóminn hlaut var einnig dæmdur til að greiða manninum sem hann sló 590 þúsund krónur í bætur. Hinn var dæmdur fyrir að greiða fórnarlambinu 307 þúsund krónur í bætur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert