Ungliðar vilja opin prófkjör

Anna Pála Sverrisdóttir, formaður Ungra jafnaðarmanna, á áhorfendapöllum borgarstjórnar.
Anna Pála Sverrisdóttir, formaður Ungra jafnaðarmanna, á áhorfendapöllum borgarstjórnar. Ómar Óskarsson

Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingar, ályktuðu í dag um að Samfylkingin skuli halda opin prófkjör til að tryggja aðkomu almennings og almennra flokksmanna að vali á frambjóðendum flokksins í næstu kosningum til Alþingis. Segja samtökin að undanfarið hafi verulega dregið úr trausti almennings til Alþingis og stjórnvalda. Því sé nauðsynlegt að nýtt Alþingi, með skýrt umboð frá almenningi, geti ráðist í uppbyggingu á íslensku efnahagslífi.

„Samfylkingin hefur ávallt barist fyrir lýðræðislegum vinnubrögðum og mikilvægt er að flokkurinn leiði þá umræðu áfram. Ungir jafnaðarmenn telja lykilatriði að Samfylkingin haldi opin prófkjör í öllum kjördæmum fyrir kosningarnar í vor. Deila má um ágæti opinna prófkjara almennt, en í kjölfar þeirrar kollsteypu sem samfélagið tók, eru sterk rök fyrir að bæði almenningur og almennir flokksmenn fái tækifæri til að koma að vali á frambjóðendum flokksins. Einnig er mikilvægt að í prófkjörum verði settar strangar reglur um kostnað og styrki.

Prófkjör getur vel farið saman við persónukjör í Alþingiskosningum, sem ríkisstjórnin mun innleiða í kosningalög. Þau eru lýðræðislegasta leiðin til að velja þau nöfn sem almenningur hefur úr að velja á kjörseðlinum,“ segir í ályktuninni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert