Ingimundur baðst lausnar

Bankastjórn Seðlabanka Íslands.Ingimundur Friðriksson, Eiríkur Guðnason og Davíð Oddsson, formaður …
Bankastjórn Seðlabanka Íslands.Ingimundur Friðriksson, Eiríkur Guðnason og Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar.

Ingimundur Friðriksson, einn þriggja bankastjóra Seðlabanka Íslands baðst í dag lausnar úr embætti. Ingimundur og Eiríkur Guðnason, svöruðu síðdegis bréfi Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra en hún fór í vikunni fram á að allir þrír bankastjórar Seðlabankans biðjist lausnar og semji um starfslok.

Ráðherra fór fram á að bréfinu yrði svarað eigi síðar en 5. febrúar eða á fimmtudag en bankastjórarnir báðu um frest til föstudags, þar sem Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar var væntanlegur til landsins á fimmtudagskvöld.

Með bréfi sem Ingimundur Friðriksson sendi forsætisráðherra síðdegis í dag, biðst hann lausnar úr embætti frá og með næstkomandi mánudegi og hefur ráðherra fallist á beiðnina.

Ekki fengust upplýsingar um innihald bréfs Eiríks Guðnasonar, að öðru leyti en því að hann baðst ekki lausnar úr embætti.

Ekkert svar hafði í  kvöld borist frá Davíð Oddssyni, formanni bankastjórnar Seðlabankans.

Tafir á svörum bankastjóranna hafa vakið athygli erlendra fjölmiðla, En AP fréttastofan greindi frá því í gær, að bankastjórarnir virtu forsætisráðherra Íslands að vettugi.

Þær upplýsingar fengust úr forsætisráðuneytinu í kvöld að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra myndi nú íhuga stöðu málsins og hvernig brugðist yrði við gagnvart þeim Eiríki Guðnasyni og Davíð Oddssyni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert